Nýjar eignir í Santa Rosalía Lake and Life Resort!Splunkunýtt á markaðnum! Glæsliegar íbúðir í Santa Rosalía Lake and Life Resort sem er einstakt svæði í kringum tilbúið lón í strandstíl með kristaltæru vatni og frábærri aðstöðu sem gerir Santa Rosalía að ekta orlofsdvalarstað. Til viðbótar við hina fjölmörgu vatnastarfsemi sem er í boði við vatnið, er strandbarinn „chiringuito“, strandklúbbur með veitingastað og líkamsræktarstöð, minigolfvöllur, hlaupa- og hjólreiðastígar, afmörkuð afslöppunarsvæði til að stunda jóga eða hugleiðslu, og margt fleira á svæðinu. Einnig eru fjölbreyttir golfvellir í næsta nágrenni, til að mynda Mar Menor Golf Resort, La Serena og Roda. Hinar stórkostlegu strendur Mar Menor og bæjarins Los Alcázares eru aðeins 4 km í burtu, þar sem fjölbreytt úrval daglegrar þjónustu er í boði. Hverfið er lokað, með öryggisgæslu við innganginn og myndavélaeftirliti, sem tryggir öryggi og næði. |
Glæsilegar íbúðir
Íbúðakjarni sem samanstendur af 2ja og 3ja svefnherbergja íbúðum; jarðhæðir með stórum garði, miðhæðir með svölum og þakíbúðir með útsýni yfir lónið. Allar eignirnar eru með 2 baðherbergjum, opnu og nútimalegu eldhúsi sem sameinast stofu, bílastæði og geymslu í kjallara. Innifalið í verði eru eldhústæki, uppsetning fyrir loftkælingu og hiti í gólfi á baðherbergjum. Íbúar hafa aðgang að sameiginlegri sundlaug og garðsvæðum. Smelltu á linkinn til að sjá mismunandi tegundir af íbúðum ⬇️ https://novushabitat.es/is/eig...
|
Sími +34 604 400 511
E-Mail info@novushabitat.es
Heimilisfang
Benimar Commercial center,
Benijofar, Spain
© 2024 Novus Habitat Real Estate · Legal athugið · Privacy · Vafrakökur(cookies) · Kort
Hönnun & CRM: Mediaelx