Nýr íbúðakjarni í Los Dolses, íbúðahverfi í Orihuela Costa á milli Villamartín Golf og Playa Flamenca. Kjarninn er umkringdur þjónustu af ýmsu tagi, s.s matvöruverslunum, börum, veitingastöðum, bönkum og hárgreiðslustofum, svo dæmi séu tekin. Það tekur einungis 5 mínútur að aka að verslunarmiðstöðinni við Zenia Boulevard og það er stutt að ganga á laugardagsmarkaðinn sem margir þekkja. Stórkostlegar strendur Orihuela Costa, eins og Playa Flamenca og La Zenia eru í stuttri akstursfjarlægð frá kjarnanum. Fyrir útivistarfólk er af nægu að taka í nágrenninu, það eru 3 golfvellir á innan við 10 km radíus frá kjarnanum og fjölnota íþróttavellir eru einungis í 5 mínútna akstursfjarlægð, með fótboltavöllum, inni sundlaug og ýmsu öðru af því tagi.
Kjarninn býður upp á íbúðir með 2 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum sem eru fáanlegar í ýmsum útgáfum; jarðhæðir með einkaverönd/garði, miðhæðir með yfirbyggðri verönd og þakíbúðir með þakverönd og sjávarútsýni. Allar íbúðirnar eru með stofuna, borðstofuna og eldhúsið í opnu rúmgóðu rými með litlu þvottaherbergi inn af eldhúsinu. Hjónaherbergið er með baðherbergi inn af og hurð út á verönd. Þakíbúðirnar eru með stiga innahúss sem leiðir upp á þakið þar sem er að finna “pergólu” úr við. Þá eru tengi til að setja upp útieldhús á þakveröndinni.
Íbúðunum fylgir tengi fyrir loftkælingu, fullbúnir fataskápar, Smart kerfi og einkabílastæði með tengi fyrir hleðslustöð fyrir rafmagnsbíla.
Kjarninn býður upp á framúrskarandi sameiginleg svæði, s.s. fullbúin græn svæði, sundlaug fyrir fullorðna og börn, strandsvæði við sundlaugina, útisturtur, leikvöll, fjölnota æfingartæki utanhúss, hjólastæði og bílakjallara. Á sundlaugarsvæðinu eru nokkur inni svæði, s.s. salerni, gufubað og stór salur. Öll grænu svæðin eru með gervigrasi og plöntum sem lækkar viðhalds – og vökvunarkostnað.
Þessar upplýsingar sem hér eru gefnar eru fyrir hendi og þær eru ekki hluti af samningi. Tilboðinu er hægt að breyta eða afturkalla án fyrirvara. Verð er ekki með VSK.
Fylltu út formið hér að neðan
Gerast áskrifandi og þú færð nýjustu fréttirnar á undan öllum öðrum.
Sími +34 604 400 511
E-Mail info@novushabitat.es
Heimilisfang
Benimar Commercial center,
Benijofar, Spain
© 2024 Novus Habitat Real Estate · Legal athugið · Privacy · Vafrakökur(cookies) · Kort
Hönnun & CRM: Mediaelx
Fyrst af öllu, takk fyrir að hafa samband við okkur.
Við höfum móttekið beiðni þína um eignarviðmiðunina:PS-912-TF. Einn af lyfjum okkar mun hafa samband við þig eins fljótt og auðið er.
Fyrst af öllu, takk fyrir að hafa samband við okkur.
Við höfum fengið beiðni um skýrslu ef þú lækkar verð á eigninni með tilvísuninni: PS-912-TF
Í millitíðinni skaltu skoða þetta úrval af svipuðum eignum, sem þú gætir haft áhuga á