Stór glæsilegt einbýlishús á eftirsóttum stað í Ciudad Quesada, íbúðahverfi með fallegu landslagi nálægt frægu saltvötnum Torrevieja og aðeins 30 km. frá flugvellinum í Alicante.
Eignin er á tveimur hæðum með 4 svefnherbergjum og þremur baðherbergjum. Húsið er í lokuðum einbýlishúsa kjarna (Laguna villas 5).
Húsið er 185 m2 og stendur á um 390 m2.
Lóðin er fallega hönnuð með flísalagðri verönd og góðu garðsvæði með pálma- og sítrónu trjám, stórri sundlaug, heitum nuddpotti, útisturtu og geymsluskúr.
Húsið er byggt með hágæða efnum og stendur út fyrir einstaka hönnun, með mikilli birtu á báðum hæðum.
Á neðri hæðinni er rúmgóð björt stofa með stórum gluggum og gler rennihurðum sem sameinar inni- og útisvæði. Opið eldhús er með borðstofu og inn af því er þvottahús og búr, með útgengt út í garð. Inn af stofunni er baðherbergi með sturtu og stórt svefnherbergi með útgengi út í garð.
Á 2. hæð eru 3 svefnherbergi og 2 baðherbergi með gólfhita, þar af er eitt þeirra inn af hjónaherberginu. Úr öllum svefnherbergjum er útgengi á L-laga svalir/verönd sem býður upp á að njóta sólar og slaka á yfir fallegu útsýni yfir hverfið.
Tæki og búnaður í húsinu er hið vandaðasta, með Villeroy & Boch, Hansgrohe og Liebherr. Þá er fallegur marmari á gólfum og innréttingum í eldhúsi og á baðherbergjum. Innfelldir rafmagnstenglar eru víðsvegar í gólfum sem eykur tækifæri til ýmissa nota.
Við hlið kjarnans er stórmarkaður og í nágrenni eru fleiri verslanir, veitingastaðir, skólar, heilsugæsla og öll helsta þjónusta.
Þessar upplýsingar sem hér eru gefnar eru fyrir hendi og þær eru ekki hluti af samningi. Tilboðinu er hægt að breyta eða afturkalla án fyrirvara. Verð er ekki með VSK.
Fylltu út formið hér að neðan
Gerast áskrifandi og þú færð nýjustu fréttirnar á undan öllum öðrum.
Sími +34 604 400 511
E-Mail info@novushabitat.es
Heimilisfang
Benimar Commercial center,
Benijofar, Spain
© 2024 Novus Habitat Real Estate · Legal athugið · Privacy · Vafrakökur(cookies) · Kort
Hönnun & CRM: Mediaelx
Fyrst af öllu, takk fyrir að hafa samband við okkur.
Við höfum móttekið beiðni þína um eignarviðmiðunina:RS-077. Einn af lyfjum okkar mun hafa samband við þig eins fljótt og auðið er.
Fyrst af öllu, takk fyrir að hafa samband við okkur.
Við höfum fengið beiðni um skýrslu ef þú lækkar verð á eigninni með tilvísuninni: RS-077
Í millitíðinni skaltu skoða þetta úrval af svipuðum eignum, sem þú gætir haft áhuga á